Um Testund
Testund varð til af ástríðu fyrir japanskri te-menningu og þeirri trú að besta byrjunin á deginum sé alltaf yfir bolla af góðu te.
Tein okkar koma beint frá Wazuka í Kyoto — einu af fremstu teræktarsvæðum í Japan, þekkt fyrir matcha, sencha og kabuse sencha. Eftir að hafa búið í Kyoto höfum við byggt upp bein tengsl við svæðið og vitum nákvæmlega hvaðan hvert te kemur.
Við leggjum áherslu á gæði, uppruna og athöfnina við að drekka te — þá litlu stund í deginum sem tilheyrir bara þér.